bloggslóðinn

Heil og sæl þá er nú aðeins að snúa sér að þessu bloggi mínu. Það hefur verið svo mikið að gera í skólanum að enginn tími hefur verið til að skrifa nokkrar línur. En við allar bekkjarsysturnar notum hverja stund sem gefst til að skrifa og undirbúa flutning á þessari þríþættu ritgerð og það er nú bara töluvert mál fyrir sjúkraliða á sjötugsaldri. En eins og ég og fleiri í þessum hóp höfum veitt athygli þá er verulega farið að halla undan fæti hjá mér, ekki að mér finnist það sjálfri heldur segja fræðin það að eftir sextugt þá daprast heyrn og hvert líffærakerfið á fætur öðru fer að gefa sig og allt er á einn veg. En ég reyni nú að halda mínu striki og held að það gangi svona þokkalega. Jæja best að líta aðeins á ritgerðina eða glærurnar. kveðjaPinch

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband